"Ég mæli því sterklega með vörunum frá Hafkalki og er þakklátur fyrir að hafa verið bent á þær."
Hlynur Bæringsson
Hafkraftur
Regular price
2.920 kr
Regular price
2.920 kr
Sale price
Unit price/ per
SAVE
Liquid error (snippets/price line 116): Computation results in '-Infinity'%
Sold out
Kraftmikil steinefnablanda án aukaefna
Gegn þreytu og orkuleysi
Hafkraftur inniheldur náttúrulegt magnesíum extrakt unnið úr sjó og Sink-L-Aspartate sem er auðmelt og kraftmikið sink, bundið amínósýrunni L-Aspartate.
Hafkraftur inniheldur einnig öflugan skammt af virku B6 vítamíni sem virkar án umbreytingar í lifur auk C vítamíns sem styður við virkni efnanna. Innihaldsefni Hafkrafts vinna öll saman að því að stuðla að jafnvægi í orkubúskap líkamans.
Magnesíum sem notað er í Hafkraft er unnið úr sjó og er ein náttúrulegasta og sterkasta uppspretta magnesíums sem völ er á (55%) og er einangrað úr sjó í fimm ára náttúrulegu ferli. Þetta gerir það kleift að hafa mikið magn virkra efna í hverju hylki af Hafkrafti.
Magnesíum er líkamanum nauðsynlegt til að viðhalda jafnvægi í vöðva- og taugakerfinu. Magnesíumskortur getur lýst sér í þreytu og streitu en leiðrétting á þeim skorti getur því gefið aukna orku samhliða slakandi eiginleikum.
Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem líkaminn getur ekki geymt og því mikilvægt að viðhalda með réttu mataræði daglega eða með neyslu fæðubótarefna.
Magnesíumskortur getur komið við sögu í margs konar sjúkdómum og má þar nefna: Þunglyndi og kvíða, hjarta og æðasjúkdóma, háan blóðþrýsting, beinþynningu, sykursýki, krampa og flog.
Hafkraftur inniheldur Sink-L-Aspartate sem er sink bundið amínósýrunni L-Aspartate. Líkaminn getur ekki geymt sink og því mikilvægt að viðhalda því með réttu mataræði eða með neyslu fæðubótarefna. Sink er m.a. mikilvægt fyrir efnaskipti og orkubúskap líkamans og hefur jákvæða tengingu við sykurefnaskipti og verkun insúlíns í líkamanum.
Þá gegnir það mikilvægu hlutverki í ónæmiskerfinu og kemur við sögu þegar sár gróa.
Hafkalk ehf. notar aðeins B6 vítamín á forminu Pyridoxal 5-Phosphate (P-5-P) sem er virka formið af B6 vítamíni og virkar án umbreytingar í lifur.
Það er talið hafa allt að tífalda virkni í samanburði við hefðbundið B6 vítamín og einnig talið öruggara í notkun.
B6 vítamín tengist mörgum þáttum í líkamsstarfsemi fólks, bæði andlegum og líkamlegum, s.s. virkni heilans og vöðvanna, upptöku fitu og próteina, B12 vítamíns o.fl. Þá tekur það einnig þátt í nýtingu og varðveislu orku úr fæðunni.
Hafkraftur inniheldur 400 mg af C vítamíni í tveimur hylkjum. C vítamín styður við upptöku á magnesíum en er einnig lífsnauðsynlegt vítamín eitt og sér.
Mannskepnan er ein fárra lífvera á jörðinni sem ekki framleiðir sitt eigið C vítamín en líkaminn nýtir það m.a. við myndun próteins til uppbyggingar húðarinnar, sina, liðamóta og æða og til viðgerða og viðhalds á brjóski, beinum og tönnum.
C vítamín er náttúrulegt andoxunarefni og spilar lykilhlutverk í orkubúskap líkamans. Skortur á C vítamíni hefur m.a. verið tengdur við óeðlilega þreytu, orkuleysi, vöðva- og liðverki.
Hafkraftur er án allra hjálpar- og aukaefna s.s Magnesíum Sterats og Silica, rétt eins og aðrar vörur Hafkalks ehf.
Hylkin eru án litarefna úr viðurkenndu hráefni úr jurtaríkinu (HPMC).
Ráðlagður skammtur er 1-2 hylki með mat.
grading
Leiðbeiningar
Notkun:
Mælum með að teknar séu 2 töflur tvisvar á dag fyrstu 2-3 vikurnar til að hlaða upp birgðir líkamans. Að þessum tíma liðnum má minnka skammtinn niður í 2 hylki á dag.
local_shipping
Sending
Ókeypis sendingargjald hvert á land sem er þegar þú pantar fyrir meira en 10.000 kr
Við sendum allar pantanir með Póstinum.
Pantanir eru afgreiddar 1-2 virkum dögum eftir pöntun.
Sending tekur svo u.þ.b. 3-4 virka daga til viðbótar.
workspace_premium
30 daga skilafrestur
Öllum pöntunum fylgir 30 daga ánægjuábyrgð.
Viðskiptavinir geta fengið vörur að fullu endurgreiddar ef þeim er skilað í upprunalegu ástandi innan 30 daga frá afhendingu vörunnar.
Hafkraftur sameinar náttúrulegt magnesíum úr sjó, öflugt sink og virkt B6 og C-vítamín. Samspil þessara næringarefna hjálpar líkamanum að viðhalda jafnvægi, auka orku og styrkja ónæmiskerfið – án allra aukaefna.
check_circle
Náttúrulegt magnesíum úr sjó
Unnið í fimm ára náttúrulegu ferli – stuðlar að slökun í vöðvum, betri svefni og jafnvægi í taugakerfi.
check_circle
Meiri orka og minni þreyta
Magnesíum, sink, B6 og C-vítamín vinna saman að því að draga úr orkuleysi og auka úthald dagsins.
check_circle
Sterkara ónæmiskerfi
Sink og C-vítamín styðja varnir líkamans, flýta fyrir sáragróanda og vernda frumur gegn álagi.
check_circle
Hrein næring án aukaefna
Engin óæskileg fylliefni eða hjálparefni – aðeins virkar náttúrulegar næringareiningar sem líkaminn nýtir til fulls.
eco
100% Náttúrulegt
Engin fylliefni, litarefni eða óþarfa aukaefni – aðeins hreinn styrkur úr hafinu.
lock
Vottuð gæði
Framleitt samkvæmt HACCP og GMP stöðlum og notað viðurkennd hráefni vottað af Tún.
shield
Traust í áratugi
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í hreinleika alla tíð alveg frá upphafi.
Hrein næring, sönn áhrif
Frá náttúrunni í Arnarfirði til þín – hver vara er vönduð, vottuð og gerð til að styðja við heilsu og vellíðan.
Sjáðu umsagnir frá fyrri viðskiptavinum
Frá árinu 2009 höfum við hjálpað fólki að styrkja líkama og heilsu með náttúrulegum fæðubótarefnum úr hafinu.
Reynslan og árangurinn tala sínu máli.
Mæli sterklega með Hafkalk
"Ég hef notað vörurnar frá Hafkalki undanfarið. Móðir mín mælti með þeim og fullyrti að þær myndu hjálpa mér í íþróttunum. Hafkalk hef ég notað í eitt og hálft ár og síðan mæli ég sérstaklega með Hafkrilli og Haf-Ró. Hafkrill er omega3 úr ljósátulýsi og Haf-Ró er blanda af magnesíum og kalkþörungum. Þessi fæðubótarefni hafa hjálpað mér mikið við að jafna mig eftir erfiða leiki og æfingar. Verandi orðinn 31 árs þarf ég að leita allra leiða til að hjálpa líkamanum við endurheimt því oft er stutt í næsta leik. Mér líður mun betur eftir átökin núna og er fljótari að jafna mig, stirðleiki og verkir hafa minnkað til muna. Ég mæli því sterklega með vörunum frá Hafkalki og er þakklátur fyrir að hafa verið bent á þær."
Hlynur Bæringsson
Líkaminn fljótari að jafna sig
"Ég hef notað Hafkalk Gull og Hafkraft og er vægast sagt ánægð með vörurnar. Ég hugsa mikið um hvað ég læt ofan í mig því ég er með ofnæmi fyrir ýmsu, m.a. nikkel og hef þar af leiðandi átt erfitt með að finna vítamín og steinefni sem ég þoli en hef ekki fundið nein einkenni eftir að ég fór að nota Hafkraft og Hafkalk Gull. Ég æfi mjög mikið og keppti meðal annars í fitness um páskana. Í undirbúningnum fann ég að líkaminn var fljótari að jafna sig á milli erfiðra æfinga og þreyta í vöðvum og stirðleiki eftir æfingar er eitthvað sem ég hef ekki fundið fyrir lengi. Einnig fann ég mjög fljótt að sykurlöngun minnkaði til muna sem gerði mér mjög auðvelt fyrir að halda út á ströngu mataræði."
Sandra Ásgrímsdóttir
Virknin er ótrúleg
"Mig langar til að segja frá því hér að ég er nú komin vel við aldur og hef þjáðst af svefnleysi allt mitt líf. Allt mitt líf segi ég því ég átti sem barn strax erfitt með svefn. Síðan er ég búin að vera að reyna alla mögulega og ómögulega hluti til að geta sofið, hef tekið inn allt sem hægt er, borðað og drukkið allt sem á að bæta svefn og prufað allar aðferðir sem ég hef rekist á og nú síðast Haf-Ró og í fyrsta sinn á æfinni finnst mér ég vera farin að sofa betur. Ég steinsofna á kvöldin og sef stundum alla nóttina án þess að vakna, sem er alveg nýtt fyrir mér, en ég er búin að taka Haf-Ró undanfarið. Ég mun halda því áfram og það fylgir því þvílík ánægja að fara að sofa og eiga von á því að sofa alla nóttina."
Agnes Löve
Dró úr verkjum og bólgum
"Ég fékk slæma vefjagigt upp úr sjálfsofnæmi og fylgdu því miklir verkir og bólgur. Eftir að ég hafði prófað mig áfram með ýmis náttúruefni þá datt ég niður á þörunga hafkalkið. Ég fann smám saman að það dró úr verkjum og bólgum og líkaminn virðist vinna betur á allan hátt. Eftir að hafa tekið Hafkalk inn í nokkurn tíma finn ég stóran mun og það nægir mér. Ég mæli því hiklaust með inntöku Hafkalks og þakka kærlega fyrir."
Þorgerður Einarsdóttir
Hreyfigetan er mun betri
Grétar Arnbergsson á Flateyri axlarbrotnaði þann 14. mars 2009. Bæklunarlæknir hans var ekki bjartsýnn á að almennileg virkni næðist í axlarliðinn. Grétar byrjaði að taka HAFKALK um mánaðarmótin júní/júlí og er sannfærður um að beinin hafi gróið fyrr og betur en annars hefði verið. Hafkalkið hafi flýtt fyrir bata og hreyfigetan sé mun betri en búist var við. að öðru leyti segist Grétar finna mikinn mun á sér, verkir í hnjánum séu horfnir. Hann hafi ekið frá Borgarfirði eystri og til Flateyrar síðla sumars, án mikillar hvíldar, og lítið fundið fyrir verk í mjaðmarlið. Liðverkirnir hefðu verið að plaga hann lengi og Grétar segist geta mælt með hafkalkinu, það virki.
Grétar Arnbergsson
Líður miklu betur
Hildigunnur Guðmundsdóttir fékk æxli í skjaldkirtlinn og það þurfti að fjarlægja hann. Við aðgerðina urðu kalkkirtlar óvirkir og kalkbúskapur líkamans fór úr skorðum. Kalkskorturinn lýsti sér í miklum dofa, stirðleika og liðverkjum. Til að ráða bót á þessu var Hildigunni ráðlagt að taka kalk og tók hún allt að 22 töflur á dag, en blóðprufur sem hún fór í á hálfsmánaðar fresti sýndu alltaf sama ójafnvægið í kalkbúskapnum og heilsufarið batnaði ekki. Hildigunnur frétti af Hafkalki og ákvað að prófa það. Fljólega sýndu rannsóknir að komið var jafnvægi á kalkbúskapinn þrátt fyrir mun minni skammta af kalki en áður. Hildigunni líður nú miklu betur og þarf aðeins að mæta til eftirlits tvisvar á ári.
Hildurgunnur Guðmundsdóttir
Hrein næring án málamiðlana
Hafkalk ehf. hefur frá upphafi haft þá stefnu að nota aldrei fylliefni eða óæskileg aukaefni.
Á meðan margir framleiðendur bæta efnum í hylki sem gera ekkert fyrir heilsuna – og geta jafnvel dregið úr upptöku næringarefnanna – leggjum við áherslu á hreinleika og gæði.
Allar vörurnar okkar innihalda aðeins þau innihaldsefni sem hafa raunverulegt næringargildi og styðja við heilsu, orku og vellíðan.
Við vinnum samkvæmt ströngustu gæðastöðlum og notum einungis viðurkennd hráefni sem tryggja góða upptöku og virkni.
Þannig getur þú verið viss um að hver vara frá Hafkalk skili því sem hún lofar.
 
 
 
Má bjóða þér
10% afslátt?
Skráðu þig á póstlistann og þú færð 10% afslátt við næstu kaup.
M:S
 
Takk fyrir
Notaðu kóðann hér að neðan til að virkja afslátt við kaup.
AFRITA
Code copied successfully!
Choosing a selection results in a full page refresh.